Photos
Lyrics
Kominn Heim
Lognið á nesinu
Ég ligg í fangi þér
Móðan á rúðunum
Hún skýlir okkur hvar sem er
Keyrum um hæðirnar
Veit allt um lægðirnar
Þerra öll tárin
Sem að flæða um sár bernskunnar
Ég veit það er sárt
Að eiga engan að
Þú ert kominn heim
Kominn heim
Ég veit hvað vantar
Og ég á það allt
Þú ert kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Kossinn minn vakti þig
Úr allri illskunni
Gömlu siðirnir hringja í þig
Þú svarar ekki
Leyfðu mér að elska þig
Lofa þér öryggi
Öll leyndarmálin þín
Ég geymi eins og fjarsjóði
Ég veit það er sárt
Að eiga engan að
Þú ert kominn heim
Kominn heim
Ég veit hvað vantar
Og ég á það allt
Þú ert kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Sé þig á hnjánum
Þegar ég hugsa til framtíðar
Veit ég mun elska þig
Til tvö þúsund og eitt hundrað
Ég veit það er sárt
Að eiga engan að
Þú ert kominn heim
Kominn heim
Ég veit hvað vantar
Og ég á það allt
Þú ert kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Ég veit hvað vantar
Og ég á það allt
Þú ert kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Kominn heim
Bara ef þú vissir
Bara ef þú vissir
Hvernig mér líður í kringum þig
Hvernig
þú kyssir
Ég kem því ekki í orð, Ég reyni að
Telja þig trú um að ég
Sé sá eini sanni
Treystu mér
nú, lofa þér
Ég mun ekki sleppa taki
Er það kannski skrítið
Leita að réttu augnabliki
Eitt
sem ég þarf að segja þér
Ævintýri næstu ára
Þegar ég horfi á mig sjálfan
Ég sé
þig hliðin á mér
Bara ef þú vissir
Ég get ekki gleymt því
Ég sá þig undir mánaljósinu
Í
fyrsta skipti, tíminn stóð í stað ég gleymdi honum
Haltu mér segðu mér, allt sem þig dreymir um
Taktu mig með
þér þangað
Ég treysti á það, ég kem því ekki orð ég reyni
að
Telja þig trú um að ég
Sé sú eina sanna
Treystu mér
nú, lofa þér
Ég mun ekki sleppa taki
Er það kannski skrítið
Leita að réttu augnabliki
Eitt
sem ég þarf að segja þér
Ævintýri næstu ára
Þegar ég horfi á mig sjálfan
Já sé
ég þig hliðin á mér
Bara ef þú vissir
Úlalla
Hitti hana ég var fyrstur
Úlallala, Úlallala
Ég veit
að hún á sæta systur
Úlallala, Úlallala
Viltu fá þennan drykk
Gefðu mér annann sipp
Endar hún
heima hjá mér í kvöld
Endar hún hjá mér í kvöld
Úlallala, Úlallala
Úlallala, Úlallala
Þú ert svo úlalla
Ég er að fýla það
Ég heyri bara
lalala
Þú ert svo úlalla
Þurfum ekki að tala
Ég veit að þú
fýlar þessar hreyfingar
Hann sagðist vilja vita meira
Úlallala, Úlallala
Sagði
honum allt það sem hann vildi heyra
Úlallala, Úlallala
Ég gæti orðið þín
Finn þetta dópamín
Streyma um
líkamann minn
Þú kannt svo vel á mig
Við dönsum hlið við hlið
Og
hann segir við mig
Þú ert svo úlalla
Ég er að fýla það
Ég heyri bara
lalala
Þú ert svo úlalla
Þurfum ekki að tala
Ég veit að þú
fýlar þessar hreyfingar
Úlallala x12
VBMM?
Þú gerðir mig ástfangna af þér
Ég treysti og hleypti þér að
mér
Sá litla strákinn sem þú geymir inn í þér
Töluðum alltaf endalaust og
Alveg fram að nótt
Hvert
andartak og hver sekúnda liðu allt of fljótt
V B M OG M
V B M OG M
Viltu byrja með mér
V B M OG
M
V B M OG M
Viltu byrja með mér
Sá þig á göngunum labba til mín
Þú sagðir hæ og ég brosti
til þín
Ég sendi á þig bíð eftir svari
Því þú ert sá
eini sem að ég þrái
Töluðum alltaf endalaust og
Alveg fram að nótt
Hvert
andartak og hver sekúnda liðu alltof fljótt
V B M OG M
V B M OG M
Viltu byrja með mér
V B M OG
M
V B M OG M
Viltu byrja með mér
Ert komin til mín
Segir mér allt sem ég vil heyra
Úóó
Þú
horfir á mig
Og þetta var spurningin
Síðasta Sumar
Það rignir í dag, ég sé andlitið á mér
í pollinum hér, þá
er sumar hjá þér.
Ég er handviss um það, það er
vetrarveður
í fanginu á þér þar sem ég var.
En nú er veturinn hjá mér
og ég veit ekki hvort að hann
fer.
Ég sakna þín síðasta sumar
ég söngla okkar seinasta lag.
Nú
sést ekki lengur til sólar
og allra vetrarmánar hanga yfir
mér.
Kannski hefði ég átt að vera betri
og sýna þér þá hvað þú
varst mér.
Þá værirðu hér og sumar í hjarta
og ylur frá
þér í fangi mér.
Kannski er regnið bara úði.
Er slyddan kannski tárið í
auganu á mér?
Ég er viss um ef þú værir hér
þá myndi
stytta upp.
Þú ert svo
Þú ert svo
Þú horfðir á mig
Ég horfði til baka baby
Ég
veit alveg hvað þú ert
Að reyna að gera með því
Þú hvíslar að mér
Þurfum að tala saman baby
Ég veit
alveg hvað þú ert
Að reyna að gera með því
Úú, aah
Ég ræð ekki við mig
Ó þú ert svo
Úú, aah
Það gerir eitthvað við mig
Ó þú ert svo
Ljósin þau slökkna
Ég sé engann anann en þig
Reyni að
horfa í burt
En ég get það ekki
Ætti ekki
Ég ætti ekki að horfa á þig
Ég stjórna ekki
Ég finn
fyrir orkunni toga mig til
Aaaaahhh
Ég ætti ekki að horfa á þig
Ég stjórna ekki
Ég finn
fyrir orkunni toga mig til
Aaaaaahhh
2100
Áttavitinn beinir beint til þín
Hjartað fast á þér pappír
og lím
Veit svo mikið læri aldrei neitt
Vildi að ég
gæti en get engu breytt
Að eilífu
Þegar við verðum orðinn fertug
Að eilífu
Muntu
horfa á mig sömu augum
Hundrað
Tvö þúsund og hundrað
Blá-rauð þau blikka á mig
Ég held ég þurfi lyf
Ég er
svo háð þér
Þau munu aldrei ná mér
Hvísla að þér þegar enginn sér
Veit að þú ert jafn háður og
ég
Þarf að haga mér ég veit það vel
Get það ekki þegar
ég er með þér
Dansa við mig
Mm ég er að horfa á þig
Mm þú ert að horfa á mig
Mm ég
vil bara þig
Mm þú vilt bara mig
Úú ertu að fýla mig
Ég
er að fýla þig baby, ég er að fý-la þig
Úú viltu dansa við mig
Ég hitna fyrir þig
Ég sagði úú
viltu dansa við mig
Úú viltu dansa við mig
Einn koss og
ég missi mig
Ég sagði úú viltu dansa við mig
Dansa við mig
Ég vil hitna hér í kvöld
Dansa við mig
Mm,
Þú
Komdu aðeins út með mér
Þar sem að enginn sér
Það er
alltof mikill hiti
Þegar ég er með þér baby
Nenni ekki að fara heim
Nema að þú sért game
Svo segðu
mér að ég sé þín í kvöld
Ef þú þorir
Held niðri andanum
Með þig a heilanum
Ég get ekki hætt
að
Hugsa um mig og þig
Sé þig standa þarna
Ég heyri þig anda
Augnaráð sem ég
mun aldrei sleppa nei
Því að nóttin hún veit meir
En þú og ég
Segjum öllum að
það
Sé alls ekkert hér
En þegar þú horfir á mig
Þá segiru mér
Að þú ert að
hugsa
Það sama og ég
Komdu ef þú þorir
Erfið fyrstu sporin
Ég finn að þú ert
að
Hreyfa þig nær mér
Taktu fyrsta skrefið
Ég get ekki beðið
Haltu fast og
reyndu að
Dansa í takt við mig
Press
Bio
Klara Einars var að leggja lokahönd á nýtt lag sem er komið út á allar helstu streymisveitur. Hún á að baki mjög skemmtilegt ár þar sem hún hélt áfram að vinna að tónlist og gefa út á milli þess sem hún kláraði stúdentspróf frá Verslunarskólanum. Í sumar byrjaði hún að vinna með ungum upptökustjóra sem kallar sig Daybright og saman hafa þau verið að taka upp og semja mikið af efni sem er mjög spennandi.
Kominn Heim
Lagið „Kominn heim“ er eitt af þeim, það var samið í sumar og tekið upp í haust af þeim sjálfum - vinur hennar Bjarki Ómars spilar á gítara og trommur en allt annað unnu þau sjálf.
Sæþór Kristjánsson snillingur sá um mix og masteringu. Það kveður við aðeins nýjan tón í þessu lagi því Klara hefur ekki bara verið að vaxa sem sviðslistamaður heldur er hún að koma sterk inn sem lagahöfundur og ekki síst textahöfundur og þetta lag er staðfesting á því.
Fullt að gera
Hún fór víða á síðasta ári, en árið byrjaði á tilnefningu í flokknum nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum og svo fylgdu fullt af skemmtilegum verkefnum. Hún tók stóra sviðið á Kótelettunni annað árið í röð og hápunkturinn var örugglega þegar hún spilaði á stóra sviðinu á Þjóðhátíð ásamt frábærum hópi dansara í algerlega brjáluðu veðri. Þá var hún í hópi frábærra söngvara á tónleikunum Komdu um jólin í Eldborgarsal Hörpu í byrjun desember þar sem hún sló alveg í gegn.
Síðustu mánuði hefur hún þó mest einbeitt sér að þessu efni sem hún hefur verið að semja með Dagbjarti / Daybright og „Kominn heim“ er fyrsta lagið sem kemur úr þeirri miklu vinnu en eftir þau liggur hellingur af efni og mun árið tæplega duga til að koma því öllu út.
Spennandi samstarf
Þorsteinn Gauja Björnsson nemi við LHÍ í fatahönnun hefur líka verið að vinna með Klöru og það er spennandi að fylgjast með því - hann á meðal annars heiðurinn af þessum rauða kjól og þessu lúkki á þessari mynd sem er burðarmyndin í grafíkinni fyrir nýja lagið en myndina tók Mummi Lú á milli jóla og nýárs.
Þórunn Klara hæfileikaríka hannar single coverið út frá ljósmynd Mumma Lú.
Contact
Management and Booking
info@klaraeinars.is